Karellen

Sérkennsla í Undralandi

Í Undralandi er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun þar sem börnum er veittur stuðningur um leið og grunur vaknar um frávik í þroska. Við vinnum með alla grunnþætti barna, félagslega, líkamlega, andlega og málþroska þeirra.

Notast er við margskonar skimunaraðferðir, m.a. Orðaskil, Tras, Smábarnalistann, Íslenska þroskalistann, Hvar stend ég? og HLJÓM-2. Þannig getum við greint frávik snemma og veitt viðeigandi þjálfun.

Sérkennslustjóri í Undralandi er Berglind Haukdóttir leikskóla- og sérkennari. Hún veitir börnum sérstaka aðstoð og kennslu í gegnum leik, spil, lestur o.fl. Vinnustundir fara fram í sérkennsluherbergi eða á deildum eftir þörfum. Ef þörf krefur er stofnað teymi í samstarfi við foreldra og sérfræðinga, t.d. talmeinafræðinga, kennsluráðgjafa og aðra sérfræðinga hjá Fræðslu- og velferðarsviði Hveragerðisbæjar.

Birgitta Kristín Bjarnadóttir, talmeinafræðingur, starfar til skiptis í leikskólum Hveragerðis. Hlutverk hennar er að greina málþroska, veita ráðgjöf, sinna talþjálfun eftir því sem kostur er.

Ávallt er unnið í anda snemmtækrar íhlutunar með það að markmiði að bregðast fljótt við og styðja börnin þannig að draga megi úr eða koma í veg fyrir frekari vanda. Náin samvinna milli foreldra, kennara og talmeinafræðings er lykill að árangri.

Farsæld barna

Frá 1. janúar 2022 tóku í gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmið laganna er að tryggja að öll börn og fjölskyldur fái rétta aðstoð á réttum tíma og frá réttum aðilum, án óþarfa hindrana.

Fjölskyldum og börnum þeirra sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að sérstökum tengilið í nærumhverfi barnsins, t.d. í leik- eða grunnskóla. Tengiliður veitir upplýsingar, leiðbeiningar og samhæfir þjónustu milli aðila.

Foreldrar geta haft samband við tengilið skólans til að óska eftir samþættri þjónustu.
Nánari upplýsingar er að finna á farsaeldbarna.is og á heimasíðu Hveragerðisbæjar

Tengiliður leikskólans er Berglind Hauksdóttir.

© 2016 - 2026 Karellen